Hver stýrir þjóðarskútunni? Hér er lítil saga um það .....

Það hafði flotið lengi áfram þetta far,

flotið yfir margar slæmar grynningar,

margir snjallir höfðu stýrt

og það hafði oft verið dýrt

að gera gamla dallinn út.

 

Það var kominn lúmskur leki að lestinni,

lamað allt um borð og lent í rassgati,

í flækju komin nót og blökk,

undiraldan þung og dökk

daginn þegar skipið sökk.

 

Og ég sver að upp í brú

þar stóð enginn stýrið við

stjórnlaust skipið sigldi á hlið.

 

Þeir höfðu stolið öllu ætu úr búrinu,

rottur höfðu flúið burt af skipinu,

skipstjórinn fékk skömm í þökk,

og í sjóinn loks hann stökk

daginn þegar skipið sökk.

 

Þessi sjóferð hafði verið löng og ströng

í óratíma hafði stefnan verið röng

þeir sem flæktu nót og blökk

fengu að taka heljarstökk,

daginn þegar skipið sökk

 

Texti: Magnús Eiríksson


mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

KR ingurinn ! Já strákurinn er mjög upptekinn við að hjálpa "kjarrip@internet.is'''

Kjartan Pálmarsson
Kjartan Pálmarsson

Smelltu á myndina! Og þá færðu smá upplýsingar sem koma mörgum á óvart, einkum mér sjálfum.

248 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband