Í hvaða skumaskoti halda stjórnmálamenn sig þessa dagana? Hér er allt stopp og verður það meðan ekkert gerist..

Eins og myndirnar bera með sér er þessi bloggsíða stopp og mun ekki hreyfast úr sporunum fyrr en hlustað hefur verið á okkur

 

456155A

456164A

 456162A

 

chinesebicycle

 

MAN

 

ominy city

 

 

Einn tvítugur

Það liggur fyrir að þetta eru ekki hreyfimyndir, í það minnsta ekki fyrr enn á okkur er hlustað og um leið gert eitthvað því þetta getur ekki gengið svona gjöld ofan á skatta og skattar ofan á gjöld ef þá ekki sekt á allt saman í ofan á lag.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Langaði bara að segja hæ. Maðurinn minn er einn af  þessum "hryðjuverkamönnum" eins og ég sá einhvers staðar sem hafa staðið fyrir mótmælum bílstjóranna. Löngu tímabært, eina stéttin sem  ég þekki allavega þar sem taxtar eru bara djók og þeir þurfa að keyra langt fyrir neðan þá ef þeir vilja fá eitthvað að gera. Eina stéttin sem ég þekki þar sem útgefinn taxti er ekki lágmarkstaxti. Og eyðslutölurnar sem miðað var við við setningu olíugjaldsins eru bara grín.

Kv. Bylgja

Bylgja Hafþórsdóttir, 31.3.2008 kl. 09:53

2 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Ég tek alltaf ofan fyrir mönnum eins og þér Kjarri sem en hafa þor til að standa í svona útgerð. Mig hefur oft langað að komast í svona akstur en ég veit hvað þetta getur verið stopult og dýrt. Ég get sagt þér sem dæmi þegar ég var gutti að alast upp í Hólminum. Þá hafa verið svona 10-12 vörubílstjórar í Hólminum með eigin bíla og eins áttu vinnslunarnar 2-3 bíla hver þeirra en þær voru 3-4 á þessu tímabili. Eins átti hreppurinn ein öflugan bíl. Nú eru 2 vörubílstjórar eftir á eigin bílum síðast þegar ég vissi og svona mismikið að gera hjá þeim. Að vísu er verktakafyrirtæki starfandi þar með 3-4 bíla plús vélar, en samt er ekki eins mikil gróska í þessu finnst mér eins og fyrir 25 árum síðan.

Gangi ykkur vel og baráttukveðjur, Sigurbrandur.

P.S. Ef illa fer þá er Strætó alltaf góður kostur

Sigurbrandur Jakobsson, 31.3.2008 kl. 10:31

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Þakka ykkur innlitið

Já það er ekki tekið út með sældinni að vera flokkaður sem terroristi á Íslandi í dag.

Já Sigurbrandur Strætó  er alltaf góður kostur þó kostirnir hafi verið kostulegri hér í þátíð. Ef svo fer að maður snúi sér þangað aftur þá er það kostur að vera ekki kallaður terroristi heldur bara 52

Kjartan Pálmarsson, 31.3.2008 kl. 12:55

4 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Það er svo skrítið að tímabær mótmæli skuli alltaf vera svona mikið feimnismál á Íslandi, ekki síst svona friðsamleg eins og hjá ykkur. Svo er samúðin ekki meiri hjá sumu fólki en svo að það bara verður að komast hvað sem fyrir er. Eru það ekki terrar?

Svo verður bara einn 52 eins og t.d. einn og sannur 88, og þrátt fyrir allt þá er alltaf gott að geta snúið til Strætó ef í hart fer. Maður átti þó allavega ekki leiðinlegar stundir þar þó maður hafi stundum verið kallaður ýmsum nöfnum.

Gangi þér vel í baráttuni Kjarri

Sigurbrandur Jakobsson, 31.3.2008 kl. 13:17

5 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 31.3.2008 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

KR ingurinn ! Já strákurinn er mjög upptekinn við að hjálpa "kjarrip@internet.is'''

Kjartan Pálmarsson
Kjartan Pálmarsson

Smelltu á myndina! Og þá færðu smá upplýsingar sem koma mörgum á óvart, einkum mér sjálfum.

238 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 995

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.