Þegar ein atvinnugrein er að lognast út af,þökk sé Ríkisstjórninni, þá vaknar önnur atvinnugrein,þökk sé bönkunum.

Það er vandlifað í þessum heimi! Þegar ein atvinnugrein er að lognast út af, þökk sé efnahagsstefnu Ríkisins, þá vaknar önnur atvinnugrein,þökk sé bönkunum já og innheimtumönnum á þeirra vegum.

Það er nú þannig í dag að ákveðið fyrirtæki þarf eflaust að fara bæta við sig fólki við það eitt að hirða tæki og tól undan fólki sem það hefur af misjöfnum ástæðum ekki getað rekið á mannsæmandi hátt sökum gjalda,álaga,skatta, auka útgjalda og umfram allt fáránlegs viðskipta umhverfis við olíufélögin.

Ef við tökum sem dæmi vörubílareksturinn einan, þá ríkir það ástand þar, líkt og gerðist í upphafi ævintýrisins um Dýrin í Hálsaskógi, þ.e fyrir þá laga setningu sem þar var síðar sett um að 

'' EKKERT DÝR MÁ BORÐA ANNAÐ DÝR'' 

Eins og ég hef áður nefnt á síðu þessari þá nærast verktakafyrirtæki á ástandinu og bjóða mönnum akstur á lágum gjöldum (miðað við rekstrarkostnað bílsins) sem eru þess eðlis að fyrir hugsandi mann borgar sig ekki að setja í gang fyrir þau. En það er eins í þessum geira eins og annarsstaðar að menn eru misjafnlega samstíga öðrum í lífinu og hugsa ( réttara sagt hugsa ekki) fram fyrir nefið á sér reyna pota sér áfram til að geta sagt sig vera í vinnu, sem kemur þeim svo um koll síðar, og eru þá búnir að sjá á eftir hugsandi kollegum sínum niðrí svaðið áður.

Það er rétt að nefna það aftur að verkefni við lengingu flugbrautar á Akureyri fékk fyrirtæki sem hefur lögheimili í Reykjavík og bauð þar að leiðandi Norðlenskum trukkamönnum vinnu við verkið á gjöldum sem tóna við það sem ég nefndi hér að ofan. En, nei Norðlensku trukka kallarnir sögðu, nei takk! Vildu keyra á þeim gjöldum sem þeir hafa í samstöðu sinni sett upp, Ok sagði Sunnlenska verktakafyrirtækið, þá sendum við bara bíla héðan að sunnan, sem var svo gert. Veit ég ekki betur enn að það séu svo allt undir verktaka sem fóru norður, þeir hinu sömu og undir buðu gámakeyrslu fyrir annað af skipafélögum landsins. Það skipafélag var ný búið að samþykkja hækkun gagnvart þeim sem voru að keyra hjá þeim upp á heilar 14 kr. pr km þegar það var svo undirboðið sem þýddi að hækkunin var á endanum alveg heilar 4.kr.

Við þetta má svo bæta að uppi eru raddir innan stéttarinnar sem hvetja til þess að kæra menn fram og til baka vegna annarra mála, sem ég ætla ekki að fara útí að svo stöddu, til þess eins gera þeim lífið það leitt að þeir leggi upp laupana,sem sagt, það er undirliggjandi stríðs ástand innan stéttarinnar einnig.

Þetta er var nú sagan af litla reiða vörubílstjóranum.

Ef einhver þarf að ná í mig vegna þessa máls er honum velkomið að gera það í hádeginu á morgun Fimmtudag í nágrenni við Dómkirkjuna í Reykjavík, þar sem ég verð við útför.

Lifið heil ! 

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

ÞÍN VELGEGNI, OKKAR VERKEFNI ! Cool

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Jei, það var miskið af einhver af bílstjórunum sjálfum þorði að opna munninn um þessi mál. Stolt af þér he he.

Bylgja Hafþórsdóttir, 28.5.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Takk fyrir það Bylgja!

Kjartan Pálmarsson, 29.5.2008 kl. 09:08

3 Smámynd: Bylgja Hafþórsdóttir

Veit ekki um neina aðra stétt sem eyðileggur eins mikið fyrir sjálfri sér og bílstjórar með þessum eilífu undirboðum og finnst fáránlegt hvernig þeir púkka undir stóru verktakana og leyfa þeim að komast upp með að bjóða kaup sem er langt undir taxta.

Bylgja Hafþórsdóttir, 29.5.2008 kl. 10:44

4 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Þetta er allt hárrétt hjá þér! Það er alveg með ólíkindum hvernig menn í þessum bransa hafa hagað sér, láta enda laust taka sig í r........ en það hlýtur að vera óþægilegt til lengdar enda með hækkandi olíuverði hefur olían til þess arna sjálfsagt hækkað líka

Kjartan Pálmarsson, 29.5.2008 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

KR ingurinn ! Já strákurinn er mjög upptekinn við að hjálpa "kjarrip@internet.is'''

Kjartan Pálmarsson
Kjartan Pálmarsson

Smelltu á myndina! Og þá færðu smá upplýsingar sem koma mörgum á óvart, einkum mér sjálfum.

240 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 989

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.